Jæja
Mætt aftur á svæðið eftir góða samkomu!
vitiði, mér gekk rosa vel í frönskuprófinu, franska er líka
snilldar mál
en talandi um andstæður þá eru jarðfræði og
franska eins og gúmmí og lím?! einhver með betri
tillögu? eldur og vatn? hehe gaman að þessu allavega svo er
efnafræði næst, Chemistry: The central Science...allur texti og
dæmi á ensku...hmmm þetta á eftir að taka helgina
svo þarf ég líka að fara að pæla í að þrífa herbergið mitt fyrir
jólin, kaupa jólagjafir, svo er ég vinna um jólin og fer vonandi að
klára ökunámið eftir jólin!
Mig langar að segja eitthvað skemmtilegt, eitthvað virkilega
skemmtilegt um mig, humm einhverja staðreynd sem fáir ykkar vita
(þ.e.a.s. þið sem fylgist með blogginu mínu)
ok koma svoooo....hei hvað með að koma með fullt af
staðreyndapakka! veit þið þráið það svo mikið!
- Ég fæddist 11 vikum fyrir tímann (kraftaverk? þokkalega!)
- Ég var 6 merkur þegar ég fæddist! (halló fyrirburi!)
- Ég á 2 systur og ég er í miðjunni
- Þegar litla systir mín fæddist sagði ég ,,Hvenær verður Heiða
fólk?'' !!!
- Ég er í Kvennó en var í Austurbæjasrskóla
- Ég hef alltaf búið í 101 Rvk og alltaf í sömu götu þó við
höfum flutt hehe (fluttum bara frá einu húsi til annars í sömu götu
þið sem skiljið ekki!)
- Besta æskuvinkona mín var Katarína (hittumst á róló og
lentum svo í sama bekk í grunnskóla)
- Vinkona mín sem ég hef þekkt lengst heitir Karólína
- Anna Bergljót, vinkona mín sem ég hef þekkt þónokkuð
lengi og ég gat alltaf sagt allt og þegar við vorum
yngri gerðum viðallskonar fáránlega hluti eins og að njósna
um foreldra okkar í sumarbústaðaferð! ahh góðir tímar
- Skrítnasta og ein af þeim fyndnastu manneskjum sem ég þekki er
Gunnhildur bekkarsystir mín! haha sry Gunnsa 
- Þegar ég var lítil gerði ég nr.2 í matarpott!
- Eitt af því sem ég elska að ég gera er að sitja uppí rúmi og
horfa á Friends
- Hef reynt að dansa í sturtu, gekk ekki alveg nógu vel
- Var í djazzballetsýningu í Borgarleikhúsinu (á DVD disk
af sýningunni, rosa gaman að horfa á hann)
- Þegar ég var 4 ára fékk ég mjög slæma barkabólgu
- Fór í fyrsta skipti til útlanda þegar ég var 11 ára (Portúgal
beibí!) æææðisleg ferð, þið vitið það linda, alli, pétur óli og
fjölskylda! (fyrir þá sem ekki vita vorum við fjölskyldurnar saman
í viku úti)
- Finnst miklu þægilegra að vera í pilsi en buxum
- Elska breytingar, sérstalega ef ég er komin með leið á
einhverju
- Hef sungið inná disk...hann heitir Gleðifrétt (Barna-og
Unglingakór Hallgrímskirkju og ég var í Unglingakórnum)
- Hef ferðast rosalega mikið um landið með fjölskyldunni
- Ég er kristin (hallelúja!)
- Fékk ekki sérherbergi fyrren ég var orðin eitthvað 15
ára...
- Uppáhaldsbúðin mín er Vero Moda
- Hef stokkið í Eyvindará (vúhú! en brrr...)
- Einn af uppáhalds stöðunum mínum eru Eyjólfsstaðir
- Ég get stundum haf gaman af því að semja ljóð
- Hehe þegar ég og litla systir vorum yngri vorum við
alltaf að semja dansa og leikrit og sýndum svo mömmu og pabba
það1
- Ég og Katarína vorum alltaf að taka okkur upp á segulbönd og
einu sinni gerðum við Titanic hljóðmyndband!! (og ég á það)!!!
- Ég elska þig!!! (haha, tja hver veit!)